Sérfræðingur
Ólafur gekk til liðs við Visku sjóði ehf. í mars 2026 eftir nám og búsetu í Kaupmannahöfn. Hjá Visku kemur hann að greiningum fjárfestinga, greinaskrifum og öðrum þáttum í rekstri félagsins.
Áður starfaði Ólafur hjá Íslandsbanka og síðar á efnahagsskrifstofu Fjármála- og efnahagsráðuneytins á árunum 2023–2025, þar sem hann kom að greiningum tengdum efnahagsmálum. Meðfram námi hefur hann jafnframt verið aðstoðarkennari í fjármálahagfræði, fjármálamörkuðum og þjóðhagfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Ólafur er með BSc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og MSc. (cand. oecon) gráðu í hagfræði og fjármálum frá CBS í Kaupmannahöfn.