Daði er framkvæmdastjóri Visku Sjóða ehf. og einn af eigendum félagsins. Hann hefur starfað á fjármálamarkaði frá 2007, lengst af á sviði markaðsviðskipta, nú síðast hjá Fossum mörkuðum hf. þar sem hann var jafnframt einn af eigendum félagsins.
Áður starfaði Daði í markaðsviðskiptum Arctica Finance hf. frá 2015 og hjá H.F. Verðbréfum hf. frá 2010 til 2015, þar sem hann var forstöðumaður markaðsviðskipta og síðar framkvæmdastjóri. Þar áður starfaði hann í gjaldeyris- og afleiðumiðlun Icebank 2007–2009.
Daði er með B.Sc. gráðu í iðnaðarverkfræði og M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands og hefur lokið prófi í verðbréfaviðskiptum.