Fjárfestingar í efnislegum og stafrænum undirstöðum nýrrar heimsmyndar
Viska macro
Viska Macro slhf.
Viska macro er sérhæfður sjóður sem fjárfestir í alþjóðlegu safni hlutabréfa og einblínir á nýja heimsmynd þar sem tækni, innviðir og harðar eignir verða lykilstoðir. Sjóðurinn fjárfestir í skráðum félögum um allan heim sem njóta góðs af langtíma kerfisbreytingum: rafvæðingu hagkerfisins, uppbyggingu reiknigetu og þeim málmum og orku sem hvort tveggja byggir á.
Viska Rafmyntasjóður
Viska Rafmyntasjóður slhf.
Viska rafmyntasjóður er sérhæfður sjóður sem leggur áherslu á fjárfestingu í rafmyntum. Viska telur að rafmyntir og bálkakeðjutækni marki grundvallarbreytingu á alþjóðlegu fjármálakerfi og að næstu ár muni einkennast af hraðri stofnanavæðingu og aukinni notkun tækninnar.