Um Visku

Viska sjóðir er íslenskt sjóðastýringarfélag sem sérhæfir sig í fjárfestingum á sviðum þar sem tækniframfarir, kerfisbreytingar og þróun alþjóðahagkerfisins skapa ný fjárfestingartækifæri.

Fjárfestingarstarf Visku byggir á virkri sjóðastýringu og greiningu á kerfisbreytingum sem móta hagkerfi og fjármálamarkaði til lengri tíma. Áhersla er lögð á að finna fjárfestingartækifæri þvert á markaði sem skapast við hraða tækniþróun, breytt fjármagnsflæði og umbreytingar í alþjóðahagkerfinu.

Viska starfrækir tvo sérhæfða sjóði. Viska rafmyntasjóður er fyrsti sérhæfði rafmyntasjóðurinn á Íslandi og var stofnaður árið 2022. Viska macro er sérhæfður sjóður með áherslu á fjárfestingar í alþjóðlegu safni hlutabréfa. Sjóðurinn einblínir á nýja heimsmynd þar sem tækni, innviðir og harðar eignir verða lykilstoðir.

Viska Sjóðir ehf. er skráður rekstraraðili sérhæfðra sjóða hjá Seðlabanka Íslands skv. lögum 45/2020.