Guðlaugur er fjárfestingastjóri Visku Sjóða ehf. og einn af eigendum félagsins. Hann hefur yfir 15 ára reynslu af fjármálamörkuðum og hefur sinnt fjárfestingum á rafmyntamörkuðum í fjölda ára, auk fjárfestinga á innlendum og erlendum fjármálamörkuðum.
Áður starfaði Guðlaugur í markaðsviðskiptum hjá Arctica Finance hf., í eigin viðskiptum Exista hf. og í fjárstýringu hjá Brim hf. Hann hefur sinnt aukakennslu í alþjóðafjármálum við Háskólann í Reykjavík og ritað greinar um fjárfestingar í rafmyntum.
Guðlaugur hefur lokið M.Sc. gráðu í fjármálahagfræði frá Háskóla Íslands, B.Sc. gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og prófi í verðbréfaviðskiptum.