Ólafur gekk til liðs við Visku Sjóði ehf. í mars 2026 eftir nám og búsetu í Kaupmannahöfn. Hjá Visku kemur hann að greiningum fjárfestinga, greinaskrifum og öðrum þáttum í rekstri félagsins.
Áður starfaði Ólafur hjá Íslandsbanka og síðar á efnahagsskrifstofu fjármála- og efnahagsráðuneytisins 2023–2025. Meðfram námi var hann aðstoðarkennari í fjármálahagfræði, fjármálamörkuðum og þjóðhagfræði við Háskóla Íslands og Háskólann í Reykjavík.
Ólafur er með B.Sc. gráðu í hagfræði frá Háskóla Íslands og M.Sc. (cand. oecon.) gráðu í hagfræði og fjármálum frá Copenhagen Business School.